Ljóst að að minnsta kosti tveir listar munu takast á um fylgi kjósenda þann 16. maí næstkomandi í sveitarstjórnarkosningum í Hörgársveit.

J-listi Grósku, hefur tilkynnt um framboð sitt með fjölbreyttum hópi frambjóðenda með ólíkan bakgrunn og reynslu. Í tilkynningu frá framboðinu kemur fram að áhersla sé lögð á ábyrga stjórnsýslu, uppbyggingu í takt við þarfir samfélagsins og aukið samráð við íbúa sveitarfélagsins.

Frambjóðendur GRÓSKU koma víðs vegar að úr sveitarfélaginu og starfa meðal annars við landbúnað, heilbrigðisþjónustu og verkefnastjórnun. Listinn er skipaður tíu einstaklingum og verður stefnumálum hans gerð nánari skil á næstu dögum samkvæmt tilkynningu.

Á móti GRÓSKU býður einnig fram D-listi sjálfstæðismanna og óháðir, sem þegar hefur hafið kynningu á sínum frambjóðendum og áherslum fyrir komandi kjörtímabil.

Kosningarnar í Hörgársveit í ár markast því af fjölbreyttum valkostum þar sem kjósendur velja á milli tveggja ólíkra nálgana á framtíð sveitarfélagsins.

Næstu vikur má búast við aukinni umræðu um stefnumál, áherslur og framtíðarsýn listanna tveggja.

Leave a comment

Trending